og Kotstrandarkirkja
Archive for mars, 2023
Helgihald í dymbiliviku og á páskum 2023
mar 28th
Pálmasunnudagur: fermingarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 11.
Föstudagurinn langi: pílagrímaganga. Byrjað verður með helgistund í Hveragerðiskirkju kl. 11:30 og gengið í Kotstrandarkirkju þar sem helgistund verður kl. 13.
Í helgistundinni í Kotstrandarkirkju mun Unnur Birna Björnsdóttir sjá um tónlist. Lesið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Öllum er velkomið að taka þátt í helgistund, einnig þeim sem ekki taka þátt í göngunni.
Páskadagur: hátíðarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 8. Morgunverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni í boði sóknarnefndar.
Hátíðarmessa í Kotstrandarkirkju kl. 14. Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur við báðar messurnar, organisti Miklós Dalmay.


Helgihald 19.mars 2023
mar 16th
Tvær guðsþjónustur verða í prestakallinu sunnudaginn 19.mars, fjölskylduguðsþjónusta í Hveragerðiskirkju kl. 11 og hefðbundin guðsþjónusta í Kotstrandarkirkju kl. 14.
Öll hjartanlega velkomin!

