Kotstrandarkirkja

Sunnudaginn 15. mars kl. 11. Fjölskylduguðsþjónusta í Kotstrandarkirkju. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Unnar Birnu Björnsdóttur. Miklós Dalmay leiðir tónlistina. Séra Salvar Geir Guðgeirsson þjónar fyrir altari.

Hveragerðiskirkja

Sunnudaginn 15. mars kl. 14. Guðsþjónusta í Hveragerðiskirkju. Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna leiðir söng undir stjórn Miklós Dalmay. Séra Salvar Geir Guðgeirsson þjónar fyrir altari.
Að guðsþjónustu lokinni, kl. 15, verður aðalfundur Hveragerðissóknar haldinn í safnaðarheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf.