Nú stendur söfnun fyrir dyrum vegna hreinsunar á nær fimmtíu ára gömlu pípuorgeli Hveragerðiskirkju. Svona hreinsun er mikið verk og kostar sitt. Af því tilefni verður efnt til styrktartónleikaraðar í kirkjunni, sem hefst 22. mars n.k. og stendur fram á vorið. Efnisskrá tónleikanna verður mjög fjölbreytt. Fjöldi tónlistarmanna, sem tengjast Hveragerði á einhvern hátt, leggja lóð sitt á vogarskálarnar og eru þeim hér með færðar bestu þakkir, sem og þeim sem hafa lagt verkefninu lið á einhvern hátt.