og Kotstrandarkirkja
Ninna
This user hasn't shared any biographical information
Posts by Ninna

Skráning hafin í barnakórinn
okt 4th
Fyrsta æfing barnakórs Hveragerðiskirkju verður miðvikudaginn 5.október. Skráning fer fram á skramur.is undir Hveragerðiskirkju.
Stjórnandi kórsins er Unnur Birna Björnsdóttir.

Safnaðarstarfið að hefjast á ný
ágú 26th
Fyrsta guðsþjónusta haustsins verður í Hveragerðiskirkju sunnudaginn 4.september nk. Fermingarbörn og forráðamenn eru boðin sérstaklega til þeirrar stundar.
Þá hefst í byrjun september starf KFUM fyrir börn í 5.-7.bekk og 8.-10.bekk og verður það nánar auglýst síðar.
Barnakórinn undir stjórn Unnar Birnu Björnsdóttur byrjar aftur í september og skráning verður auglýst þegar nær dregur.
Foreldramorgnarnir eru byrjaðir aftur að loknu sumarleyfi. Þeir eru á þriðjudagsmorgnum kl. 11-13 og opnir öllum foreldrum með litlu börnin sín.

Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar
jún 1st
Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar árið 2022 verður haldinn í
Kotstrandarkirkju miðvikudaginn 8. júní kl. 18:00.
Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt reglum þar um. Rætt verður um
safnaðarstarf, málefni kirkjunnar og þá sérstaklega fyrirhugaða viðgerð á
gluggum kirkjunnar, en nauðsynlegt er að ráðast í þá framkvæmd og mikilvægt að safnaðarfólk mæti til fundarins og kynni sér þau fjárfreku áform.
Í fundarlok verða kaffiveitingar.
Sóknarnefnd Kotstrandarkirkju.


Skráning er hafin í fermingarfræðslu
jún 1st
Skráning er hafin í fermingarfræðslu í Hveragerðisprestakalli og fermingar vorsins 2023.
Skráning fer fram hér: https://hveragerdiskirkja.skramur.is/input.php?id=1
Allar nánari upplýsingar veitir sóknarprestur.

Aðalsafnaðarfundi frestað
maí 30th
Aðalsafnaðarfundi Kotstrandarsóknar sem vera átti í dag, mánudag 30.maí, hefur verið frestað.

Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar
maí 23rd
Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar verður haldinn í Kotstrandarkirkju mánudaginn 30.maí 2022 kl. 18. Venjuleg aðalfundarstörf.


Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar 2022
maí 17th
Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar verður haldinn í Hveragerðiskirkju þriðjudaginn 31.maí nk. kl. 17. Venjuleg aðalfundarstörf.
Verum öll hjartanlega velkomin!


Helgihald í dymbilviku og á páskum 2022
apr 8th
Pálmasunnudagur: fermingarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 11.
Föstudagurinn langi: pílagrímaganga. Byrjað verður með helgistund í Hveragerðiskirkju kl. 11:30 og gengið í Kotstrandarkirkju þar sem endað verður með helgistund kl. 13.
Í helgistundinni í Kotstrandarkirkju mun Unnur Birna Björnsdóttir sjá um tónlist. Lesið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Öllum er velkomið að taka þátt í helgistund, einnig þeim sem ekki taka þátt í göngunni.
Páskadagur: hátíðarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 8. Morgunverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni í boði sóknarnefndar.
Hátíðarmessa í Kotstrandarkirkju kl. 14. Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur við báðar messurnar, organisti Miklós Dalmay.


Barnakór kom fram í fyrsta sinn
mar 6th
Barnakór Hveragerðiskirkju kom í fyrsta sinn fram í guðsþj´ónustu í morgun. Óhætt er að segja að börnin hafi staðið sig með sóma.
Kórinn var stofnaður í haust og stjórnandi hans er Unnur Birna Björnsdóttir.

