Óflokkað

Fimm hluta pílagrímagönga: Frá Strandarkirkju í Skálholt

Fyrsti hluti pílagrímagöngu: Frá Strandarkirkju í Þorlákshöfn

Næstkomandi sunnudag verður fyrsta dagleið í nýrri fimm daga pílagrímagöngu frá Strandarkirkju í Skálholti, gengin. Það er Ferðafélag Íslands sem skipuleggur gönguna ásamt undirbúningsnefnd.
Undirbúningur þessa verkefnis hefur staðið yfir í þó nokkurn tíma, en vinnuhópur um verkefnið var skipaður í kjölfar kynningafundar í Skálholti þar sem Edda Laufey Pálsdóttir, eldri borgari í Þorlákshöfn, kynnti hugmyndina.  Í vinnuhópnum eiga sæti þau Barbara Guðnadóttir fyrir Ölfus, Bragi Bjarnason fyrir Árborg, Rósa Matthíasdóttir fyrir Flóahrepp, Ásborg Arnþórsdóttir fyrir Uppsveitir Árnessýslu og Axel Árnason Njarðvík, héraðsprestur Suðurprófastsdæmis.
Að mörgu er að hyggja þegar ný gönguleið er hönnuð. Ræða þarf við landeigendur, ákveða gönguleið á hverjum stað, huga að merkingum og prufuganga leiðirnar. Verkefnið hlaut styrk úr Uppbyggingarsjóði Suðurlands, en styrkurinn mun nýtast í fyrsta hluta verkefnisins sem miðar að því að velja leiðir, kortaleggja leiðina og skipuleggja prufugöngur. Göngurnar í sumar sem skipulaggðar eru með Ferðafélagi Íslands, eru einmitt fyrstu prufugöngurnar.

Alls verður gengið fimm sunnudaga í sumar á eftirfarandi dögum:
22. maí, Strandarkirkja – Þorlákskirkja. Lagt af stað með rútu kl. 9:30 frá íþróttahúsinu í Þorlákshöfn. Gengið frá Strandarkirkju um 18 km leið með sjónum sem leið liggur austur í Þorlákshöfn.
21. júní, Þorlákshöfn – Stokkseyri. Brottför með rútu frá Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri kl. 9:30. Gengið eftir sandfjörunni frá Þorlákshöfn að Hafinu Bláa og áfram með sjónum, framhjá Eyrarbakka og eftir nýrri gönguleið til Stokkseyrar. Þessi ganga er um 19 km löng.
25. júní. Stokkseyri – Villingaholt. Brottför með rútu frá Villingaholtskirkju kl. 9:30. Gengið frá Hólmarastarhúsinu á Stokkseyri um fallegt svæði að Gaulverjabæjarkirkju og áfram að Villingaholti um 21 km.
10. júlí. Villingaholt í Flóa – Ólafsvallakirkja á Skeiðum. Brottför með rútu frá Ólafsvallakirkju kl. 9:30. Gengið um Flóann og upp Skeiðin um 20 km leið um sunnlenska sveit.
24.júlí. Ólafsvallakirkja á Skeiðum – Skálholtsdómkirkja. Brottför með rútu frá Skálholti kl. 7:00. Gengið um 17 km leið frá Ólafsvallakirkju á Skeiðum sem leið liggur um fallega sveit norður í Skálholti. Göngunni lýkur á Skálholtshátíð þar sem pílagrímar koma einnig úr Borgarfirði þennan dag.

Hver ferð kostar kr. 9.000 (6.000 kr fyrir félaga í FÍ) og er það Ferðafélag Íslands sem heldur utanum skráningu í ferðirnar. Sími Ferðafélagsins er 568 2533 og vefsíða www.fi.is.

Tónleikar Tónlistarskóla Hveragerðis

Tónleikar Tónlistarskóla Hveragerðis verða 23. maí kl. 18.

Hvítasunnudagur 2016

Fermingarmessa í Hveragerðiskirkju á Hvítasunnudegi 15. maí kl. 10:30. Prestur Axel Á Njarðvík, organisti Miklos Dalmay. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna leiðir söng og syngur. Verið öll hjartanlega velkomin til helgihaldsins.

Andrea Sjöfn Heimisdóttir Réttarheiði 18
Aþena Íris Þórsdóttir Valsheiði 27
Einar Ísberg Kambahrauni 42
Gígja Marín Þorsteinsdóttir Laugaskarði 2
Guðjón Ingason Arnarheiði 30
Phuwalak Phansuea Laufskógum 1
Rakel Rebekka Sigurðardóttir Heiðarbrún 57
Sebastían Dagur Benediktsson Heiðarbrún 28
Sigurður Dagur Hjaltason Lyngheiði 22
Sigurður Ísak Ævarsson Valsheiði 20

Fermingarmessa í Kotstrandarkirkju á Hvítasunnudegi 15. maí kl. 13:30. . Prestur Axel Á Njarðvík, organisti Miklos Dalmay. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna leiðir söng og syngur. Verið öll hjartanlega velkomin til helgihaldsins.

Anja Steinunn Christensen Heiðarbrún 13
Ellý Alexandra Chenery Laufskógum 2a
Estella Nótt Silao Arnarheiði 3
Friðrik Páll Jónsson Móhellu 11
Glódís Rún Sigurðardóttir Sunnuhvoli
Jónína Baldursdóttir Kirkjuferju
Kristófer Örn Kristmarsson Hraunbæ 30
Margrét Ágústa Jóhannsdóttir Núpastíg 6

Fermingarmessa í Hverðagerðiskirkju

Fermingarmessa verður í Hverðagerðiskirkju kl. 10:30 sunnudaginn 1. maí nk.
Þrjú ungmenni fermast. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna leiðir söng og syngur. Organisti Miklos Dalmay. Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Verið velkomin til fagnaðarins.

Tónleikar Menntaskólans á Laugarvatni

Tónleikar Menntaskólans á Laugarvatni verða 4. maí kl. 20.

Tónleikar Söngsveitar Hveragerðis

Tónleikar Söngsveitar Hveragerðis verða 1. maí kl. 17.

Ferming 3. apríl 2016

Fermingarmessa verður í Hverðagerðiskirkju kl. 10:30 sunnudaginn 3. apríl nk.
Fjögur ungmenni fermast. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna leiðir söng og syngur. Organisti Miklos Dalmay. Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Verið velkomin til fagnaðarins.

Skírdagskvöld

Messa á skírdagskvöld kl. 20 og Getsemanestund í lokin. Þá er altarið afskrýtt og lesinn verður kafli píslarsögunnar um bæn Jesú í Gesemane. Að því loknu eru ljós slökkt og munir altarisins teknir af því, á meðan lesinn er 22. Davíðssálmur. Þannig er gengið inn í myndræna íhugun niðlægingar Krist.

Fermingarbörnin í Skálholt

Mánudaginn 14. mars nk. er ætlað að fara með fermingarbörnin í Skálholt. Langt verður af stað frá Grunnskólanum á sama tíma og skólinn hefst.
Börnin þurfa að vera sæmilega klædd eftir veðri. Þau þurfa að greiða 1500 kr en sóknin greiðir rútuna og prófastdæmið fyrir kennslu og leiðtoga í Skálholti.
Öllum börnum er fjálst að koma með hvort sem þau fermast hér eða annars staðar eða ekki. Börnin fá frí þennan dag í skólanum til að komast og formlega þá þurfa eða ættu foreldrar að hafa samband við skrifstofu skólans og fá þannig leyfi fyrir fjarvistina.

Gott væri ef eitt eða fleiri foreldri gæti komist með því hópurinn er 31 barn og kannski fullmikið fyrir einn að halda utan um alla. Bið ég slíka að hafa samband við mig, síminn er 856 1574

Komið verður heim um kl. 16.

kær kveðja
axel prestur, sími 8561574

Biblíulestur 2016

Lúkasarguðspjall lesið í Hvergerðiskirkju 2016

Boðið er upp á Biblíulestur í Hveragerðiskirkju á fimmtudögum í mars kl. 17:45 – 19:15 og lesið verður Lúkasarguðspjall. Það er margt í Lúkasarguðspjalli sem skemmtilegt er að skoða. Hver eða hvað er Þeófílus? Hvað varð um höfuðu Jóhannesar? Hver var Messías í sögunni? Hver var játning Péturs? Var Símon Pétur, eða var Pétur Símon? Hvað er að vera sæll? Hvað varð um Emmaus? Af hverju eru kaflarnir 24? Og hvað er Quelle? Margar spurningar vakna og sumum er hægt að svara en aðrar eru bara til að spyrja.

Sóknarpresturinn sr. Axel Á Njarðvík sér um prógrammið og fólkið beðið að skrá sig í síma 856 1574. Ekkert þátttökugjald er og er öllum opið. Hægt er að koma inn í prógrammið þó hafið sé

Verið velkomin