Tilbeiðsla

Bænastund og súpa

Næsta bænastund verður fimmtudaginn 23. október kl. 12:15.

Við byrjum á stuttri bænastund í kirkjunni, svo höldum við inn í safnaðarheimili þar sem súpa og meðlæti er í boði gegn vægu verði.

Séra Salvar Geir Guðgeirsson leiðir bænastundina og Ásta Björg kirkjuvörður sér um veitingar.

Verið velkomin.

Helgihald helgarinnar-19. október

Hveragerðiskirkja: Guðsþjónusta kl. 11

Kotstrandarkirkja: Guðsþjónusta kl. 14.

Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur og leiðir sönginn og organisti er Miklós Dalmay.
Séra Salvar Geir Guðgeirsson þjónar fyrir altari.

Verið hjartanlega velkomin.

Bænastund og súpa

Bænastund fimmtudaginn 16. október fellur niður vegna jarðarfarar. Sjáumst næst fimmtudaginn 23. október kl. 12:15.

Bænastund og súpa

Næsta bænastund verður fimmtudaginn 9. október kl. 12:15. Við byrjum á stuttri bænastund í kirkjunni, svo höldum við inn í safnaðarheimili þar sem súpa og meðlæti er í boði gegn vægu verði.

Séra Salvar Geir Guðgeirsson leiðir bænastundina og okkar ástkæri kirkjuvörður Ásta Björg töfrar fram dýrindis súpu. Allir velkomnir.

Sunnudagur 5. október-Kvöldguðsþjónusta

Sunnudaginn 5. október er kvöldguðsþjónusta í Hveragerðiskirkju kl. 20. Hið hefðbundna messuform er brotið upp á 45 mínútum með fallegum sálmasöng og töluðu máli.

Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur og leiðir sönginn og organisti er Miklós Dalmay.
Séra Salvar Geir Guðgeirsson þjónar fyrir altari.

Bænastund og súpa

Bænastundir þetta haustið hefjast fimmtudaginn 2. október kl. 12:15. Við byrjum á stuttri bænastund í kirkjunni, svo höldum við inn í safnaðarheimili þar sem súpa og meðlæti er í boði gegn vægu verði. Séra Salvar Geir Guðgeirsson leiðir bænastundina og okkar ástkæri kirkjuvörður Ásta Björg töfrar fram dýrindis súpu. Allir velkomnir.

Sunnudagur 21. september

Sunnudaginn 21. september er hefðbundin guðsþjónusta í Hveragerðiskirkju kl. 11.

Um kvöldið er guðsþjónusta í Kotstrandarkirkju kl. 20. Hið hefðbundna messuform er brotið upp á 45 mínútum með fallegum sálmasöng og töluðu máli.

Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur og leiðir sönginn og organisti er Miklós Dalmay.
Séra Salvar Geir Guðgeirsson þjónar fyrir altari.

Séra Salvar mun sinna afleysingaþjónustu sóknarprests næsta árið og verður þetta hans fyrsta sunnudagsþjónusta.

Verið velkomin.

Guðsþjónusta að kveldi dags

Sunnudagskvöldið 7. september er guðsþjónusta í Hveragerðiskirkju kl. 20. Hið hefðbundna messuform er brotið upp á 45 mínútum með fallegum sálmasöng og töluðu máli sem er flétt saman og þannig gengið inn í hið heilaga rými sem sálinni er svo mikilvægt til umbreytingar.

Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur og leiðir sönginn og organisti er Miklós Dalmay. Sr. Axel Á Njarðvík, héraðsprestur þjónar fyrir altari. Verið velkomin.

Sunnudagurinn 19. janúar 2025

Guðsþjónusta verður í Hveragerðiskirkju kl.11. Prestur Axel Á Njarðvík héraðsprestur þjónar fyrir altari. Organisti Miklós Dalmay. Kirkjukór leiðir söng. Verið velkomin.

Guðsþjónusta verður í Kotstrandarkirkju kl.14. Prestur Axel Á Njarðvík héraðsprestur þjónar fyrir altari. Organisti Miklós Dalmay. Kirkjukór leiðir söng. Verið velkomin.

Barnakór kom fram í fyrsta sinn

Barnakór Hveragerðiskirkju kom í fyrsta sinn fram í guðsþj´ónustu í morgun. Óhætt er að segja að börnin hafi staðið sig með sóma.

Kórinn var stofnaður í haust og stjórnandi hans er Unnur Birna Björnsdóttir.