Messa er í Kotströnd 17. apríl kl. 13:30 að þessu sinni. Eitt ungmenni fermist. Kirkjukór Hveragerðis og Kotstrandarsókna leiðir söng og syngur. Organisti Miklos Dalmay. Prestur sr. Axel Á Njarðvík. Eftir messuna býður Kvennfélagið Bergþóra í Ölfusi í kirkjukaffi. Söfnuði og sveitungum er þar með boðið í kaffi eftir messu á Kotströnd sunnudaginn 17. apríl næstkomandi kl. 14:30. Kaffið verður haldið í Birkihlíð bústað Kvenfélagsins sem er í landi Gljúfurs í Ölfusi og hefst kl. 14:30 eða svo. Allir eru hvattir til að koma, njóta samveru í fallegu umhverfi og veitinga í boði Kvenfélagsins.Kirkjukaffi Kvenfélagsins Bergþóru í Ölfusi