Æskulýðsstarfið

Æsklýðsstafið í Hveragerðisprestakalli er í samstarfi við KFUM. Starfið fer að mestu leyti fram í Safnaðarheimili Hveragerðiskirkju á mánudagskvöldum. Sjá dagskrá

Yngri deildir eru fyrir 9-12 ára krakka. Krakkarnir hittast einu sinni í viku í sinni deild og gera ýmislegt skemmtilegt saman t.d. fara í leiki, óvissuferðir, Pálínuboð, búa til nælur, mála á plexigler og ýmislegt fleira.  Á hverjum fundi er helgistund.  Yfir veturinn eru ýmsir sameiginlegir viðburðir s.s. fótbolta- og brennómót og stutt ferðalag í sumarbúðirnar.

Unglingadeildir eru fyrir unglinga 13-16 ára. Þátttakendur hittast einu sinni í viku og er dagskráin í bæði skemmtileg, fróðleg og uppbyggjandi. Farið er að minnsta kosti í tvær helgarferðir á ári. Á haustin fara sumir hópar á landsmót kirkjunnar en aðrir taka þátt í gistinótt á Holtavegi í Reykjavík eða fara á Hólavatn fyrir norðan. Í febrúar halda síðan allir hópar á unglingalandsmót KFUM og KFUK í Vatnaskógi.

Umsjón með æskulýðsstarfinu hefur Samúel Pétusson