Aðalsafnaðarfundi frestað

Aðalsafnaðarfundi Kotstrandarsóknar sem vera átti í dag, mánudag 30.maí, hefur verið frestað.

Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar

Aðalsafnaðarfundur Kotstrandarsóknar verður haldinn í Kotstrandarkirkju mánudaginn 30.maí 2022 kl. 18. Venjuleg aðalfundarstörf.

Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar 2022

Aðalsafnaðarfundur Hveragerðissóknar verður haldinn í Hveragerðiskirkju þriðjudaginn 31.maí nk. kl. 17. Venjuleg aðalfundarstörf.

Verum öll hjartanlega velkomin!

Helgihald í dymbilviku og á páskum 2022

Pálmasunnudagur: fermingarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 11.

Föstudagurinn langi: pílagrímaganga.  Byrjað verður með helgistund í Hveragerðiskirkju kl. 11:30 og gengið í Kotstrandarkirkju þar sem endað verður með helgistund kl. 13. 

Í helgistundinni í Kotstrandarkirkju mun Unnur Birna Björnsdóttir sjá um tónlist.  Lesið úr Passíusálmum Hallgríms Péturssonar. Öllum er velkomið að taka þátt í helgistund, einnig þeim sem ekki taka þátt í göngunni.

Páskadagur: hátíðarmessa í Hveragerðiskirkju kl. 8.  Morgunverður í safnaðarheimilinu að messu lokinni í boði sóknarnefndar.

Hátíðarmessa í Kotstrandarkirkju kl. 14. Kirkjukór Hveragerðis – og Kotstrandarsókna syngur við báðar messurnar, organisti Miklós Dalmay.

10 Exciting Facts About Easter Sunday - The Fact Site

Barnakór kom fram í fyrsta sinn

Barnakór Hveragerðiskirkju kom í fyrsta sinn fram í guðsþj´ónustu í morgun. Óhætt er að segja að börnin hafi staðið sig með sóma.

Kórinn var stofnaður í haust og stjórnandi hans er Unnur Birna Björnsdóttir.

Hlekkur á útför Guðjóns Pálssonar

Útför Guðjóns Pálssonar frestað

Útför Guðjóns Pálssonar, sem vera átti í dag þriðjudag 22.febrúar hefur verið frestað vegna veðurs. Hún fer fram frá Hveragerðiskirkju á morgun miðvikudag 23.febrúar kl. 13.30. Athugið breyttan tíma.

Kyrrð, bæn og íhugun

Á þriðjudögum kl. 17-17.30 er kyrrðar – og íhugunarstund í Hveragerðiskirkju. Allir velkomnir.

Spennandi dagskrá í KFUM

Dagskráin á vormisseri í KFUM starfinu er vönduð og spennandi.

5.-7.bekkur er á mánudögum kl. 18.

8.-10.bekkur er á mánudögum kl. 20.

Allir velkomnir, engin skráning og enginn kostnaður fyrir þátttakendur.

Æskulýðsstarfið hefst aftur að loknu jólaleyfi

Æskulýðsstarfið hefst aftur að loknu jólaleyfi mánudaginn 18.janúar.

Kirkjubrall fyrir 1.-4.bekk er á miðvikudögum kl.15.10-16. Skráning hér: https://hveragerdiskirkja.skramur.is/input.php?id=9

Yngri deild KFUM fyrir 5.-7.bekk er á mánudögum kl.18-19.

Eldri deild KFUM fyrir 8.-10.bekk er á mánudögum kl.20-21.30. Skráning er ekki nauðsynleg í starf KFUM, bara mæta á staðinn.

Þátttaka í æskulýðsstarfi kirkjunnar er þátttakendum að kostnaðarlausu.